Frá 1. desember 2020 til 1. ágúst á þessu ári hefur íbúum Reykjavíkurborgar fjölgað um 981, sem nemur 0,7% fjölgun.
Á sama tíma hefur íbúum í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ einnig fjölgað um nokkur hundruð.
Íbúum í Hafnarfirði hefur aftur á móti fækkað um 154 og íbúum á Seltjarnarnesi um 18. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár.
Mest fjölgun
Í Helgafellssveit, sem staðsett er á norðanverðu Snæfellsnesi, hefur íbúafjöldi aukist hlutfallslega mest þegar horft er til alls landsins. Fjölgað hefur um 14 í sveitarfélaginu eða um 21,5% fjölgun.
Í öðru sæti yfir hlutfallslega mestu fjölgunina er Hörgársveit sem staðsett er skammt frá Akureyri. Þar hefur fjölgað um 7,3% eða um 47 íbúa.
Fækkað mest
Íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fækkaði hlutfallslega mest eða um 14,2% og Ásahreppi um 5,1%.
Reykjanesbær enn í fjórða sæti
Íbúum Reykjanesbæjar fjölgaði um 330 og heldur bæjarfélagið því enn fjórða sæti yfir fjölmennasta sveitarfélag landsins. En árið 2019 tók Reykjanesbær fram úr Akureyri, sem hafði fram að því vermt fjórða sæti í áratugi.
Á Akureyrar hefur þó einnig verið fólksfjölgun, en íbúum bæjarins hefur fjölgað um 219 eða 1,1%.
Fjölgun um allt land
Ef horft er á alla landshlutana í heild sinni þá fjölgaði í þeim öllum. En hlutfallslega fjölgaði mest á Suðurlandi eða um 1,8% og á Austurlandi um 1,5%.