- Auglýsing -
Sólveig Jónsdóttir, formaður Eflingar, er að líkindum ein rægðasta kona Íslands. Skýringin er væntanlega sú að hún hefur staðið sig vel í embætti sínu og er raunveruleg ógn við karla sem hafa völd og ríghalda í þau. Sólveig taldi upp í færslu sinni á Facebook allan þann óhróður sem á henni hefur dunið. Þar fær Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins á baukinn fyrir æymis ummæli sem fallið hafa í Mogganum um Sólveig. Þá nefnir hún Einar Kárason, ævisagnahöfund Jóns Ásgeirs Jóhannessonar til sögunnar vegna óhróðursins. Sólveig spyr í grein sinni: „Af hverju á ég að taka því þegjandi og hljóðalaust að vera rægð og svívirt?“