- Auglýsing -
Kim Kardashian klæddist hönnun Thierry Mugler á Met Gala. Flíkin sjálf var afar þröng og gerð úr latexi og þurfti Kim að klæðast lífstykki til að komast í flíkina.
Kim fékk Vogue í heimsókn til sín þegar lokamátunin fór fram og þá sagði hún nánar frá flíkinni sem hún klæddist og hugmyndinni á bak við hana.
Í myndbandi Vogue má þá sjá hversu mikillar vinnu krafðist að koma Kim í lífstykkið. „Ég get varla sest niður, ég get bara hálfsest,“ segir Kim í myndbandinu.
Þess má geta að Kim þurfti að láta keyra sig á viðburðinn í bíl sem hægt er að standa í. Þá fékk hún einnig sérstakan stól á viðburðinum sem hún gat tyllt sér á.
Sjá einnig: Jakkinn kostar rúmar 5.000 krónur