Síðdegis í gær var ekið á sjö ára stúlku í Kópavogi. Stúlkan var á hjóli þegar bifreið kom aðvífandi og lenti á stúlkunni með þeim afleiðingum að hún slasaðist. Ökumaðurinn lét sig hverfa af vettvangi. Barnið var flutt með sjúkrabíl á Bráðadeild. og er líklega handleggsbrotið. Lögregla hafði nokkru síðar uppi á ökumanninnum sem reyndist vera 85 ára. Öldungurinn var að auki próflaus.
Í gærkvöld var maður í annarlegu ástandi ítrekað til vandræða í miðborg Reykjavíkur. Maðurinn var með ólæti og vann skemmdarverk. Hann er einnig grunaður um brot á lögreglusamþykkt. Hann var handtekinn og sefur nú úr sér á gúmmídýnu í fangaklefa.
Í Mosfellsbæ varð árekstur á milli tveggja bifhjóla sem lentu á kyrrstæðri bifreið. Ökumennirnr féllu af hjólum sínum. Ökumennirnir kenndu sér báðir eymsla og héldu á Bráðadeild til skoðunar.
Mikið var um ölvaða og dópaða ökumenn á ferli á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan náði að góma nokkra þeirra. Dópsali var handtekinn í miðborg Reykjavíkur. Hann er grunaður um að hafa boðið upp á bæði lyf og fíkniefni. Maðurinn hvílir nú í fangageymslu lögreglunnar.
Vopnaður þjófur var stöðvaður, grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og brot á vopnalögum. Í bifreiðinni fannst ætlað þýfi og var maðurinn umsvifalaust læstur inni.