- Auglýsing -
Andrúmsloftið innan ríkisstjórnarinnar er nú við frostmark. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, skaut föstum skotum á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra nýlega varðandi stöðu Landspítalans og fór sú gagnrýni illa í marga innan raða samstarfsflokka fjármálaráðherrans. Gagnrýni Bjarna mun hafa farið illa í marga innan VG og Framsóknar. Innan ríkisstjórnarinnar er hermt að ríki hreinlega stríðsástand; skeytin fljúgi á milli og kuldinn í samskiptum nálgist óbeit. Sumir ráðherrar og starfsfólk í kringum þá kvíða að sögn fundum ríkisstjórnarinnar og telji nú niður dagana fram að kosningum …