Sky fréttastöðin breska tilkynnti núna áðan að knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson sé laus gegn tryggingu til 16. október næstkomandi.
Rannsókn á máli Gylfa er í fullum gangi en hann er þó ekki í varðhaldi eftir að hafa greitt tryggingu.
Sjá einnig: Tengdafaðir Gylfa Þórs knattspyrnukappa: „Þau eru ekki að skilja“
Mál hans verður því tekið fyrir af dómstól í Manchester 16. október næstkomandi, og þá mun væntanlega fljótlega koma í ljós hvort Gylfi sé sekur eða saklaus um að hafa átt í kynferðissambandi við stúlku undir lögaldri.
Fjölmiðlafulltrúi Everton, liðsins sem Gylfi er samningsbundinn en hefur ekki rift samningi Gylfa endanlega, heldur í raun sett samninginn á „ís“, segir að félagið muni áfram aðstoða lögreglu við rannsókn málsins:
„The club will continue to support the authorities with their inquiries and will not be making any further statement at this time.“
Saksóknarinn Michael Ellis varar fólk við að tjá sig opinberlega um mál Gylfa á samfélagsmiðlum:
„Allir eru saklausir uns sekt sannast og allir eiga rétt á sanngjörnum réttarhöldum. Ég bið alla að fara varlega hvað þetta mál varðar, því skrif á samfélagsmiðlum geta skaðað málið og tafið það, í versta fallið stoppað málið. Það þarf að fara varlega í svo viðkvæmu máli og ég hvet fólk eindregið til að hafa sig hægt í skrifum á netinu svo að réttarhöldin verði sanngjörn,“ segir Michael Ellis, sem ekki fyrir svo löngu setti á laggirnar herferðina: #ThinkBeforeYouPost.