- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Símoni Símonarsyni, 73 ára. Hann er 160 sm á hæð og gráhærður. Símon er líklegast klæddur í gallabuxur og dökkbláa úlpu og mögulega með litríkan trefil. Talið er að hann sé með fjólubláa tösku meðferðis. Síðast er vitað um ferðir Símonar við Boðaþing í Kópavogi í gær.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Símonar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.