Maður með hamar gerði tilraun til að ræna verslun í Hafnarfirði í nótt. Hann ógnaði starfsfólki með hamrinum og krafðist þess að fá peninga úr sjóðsvél. Það var ekki látið eftir honum og fór hann á brott tómhentur en með hamarinn. Lögreglan rannsakar málið og leitar mannsins með hamarinn.
Það voru fleiri tíðindi úr Hafnarfirði. Lögreglu barst tilkynning um uppblásinn björgunarbát um borð í skipi. Ungmenni höfðu unnið það skemmdarverk að tosa í spotta og blása upp bátinn. Foreldrar voru kallaðir til ásamt fulltrúa Barnaverndar.
Ökumaður á bifhjóli missti stjórn á ökutæki sínu með þeim afleiðingum að hann datt. Hann var með skurð á hendi og ætlaði að koma sér sjálfur á bráðamóttöku.