Málefni KSÍ og pistlar sem framhaldsskólakennarinn Hanna Björg Vilhjálmsdóttir hefur ritað síðustu daga um meinta þöggun sambandsins, bar á góma í hlaðvarpsþættinum The Mike Show.
Greinar Hönnu um forystu KSÍ hafa vakið athygli. Mannlíf hefur í allt sumar reynt að fá viðbrögð frá sambandinu varðandi meinta gerendur í kynferðisbrotamálum og öðrum ofbeldismálum sem landsliðsmenn karla í knattspyrnu hafa verið tengdir við.
Eins og áður var nefnt var komið inná málefni KSÍ og pistlaskrif Hönnu í hlaðvarpsþættinum The Mike Show þar sem þeir Hugi Halldórsson og Mikael Nikulásson reifuðu málið, en sérstaklega fór Hugi mikinn í þættinum; virðist komast að þeirri niðurstöðu að þeir sem eru ekki „sérfræðingar“ um knattspyrnu ættu ekki að vera tjá sig um KSÍ, jafnvel þótt umfjöllunarefnið tengist í raun ekkert knattspyrnu, heldur umræddri þöggun KSÍ varðandi meint ofbeldi landsliðsmanna:
„Svar KSÍ við pistli frá konu með lyklaborð, hún veit ekkert um íþróttir. Hún skrifar pistil og KSÍ ákveður tíu dögum seinna að vakna 9:30 og svara henni,“ sagði Hugi og bætir við að honum hafi ekki þótt greinaskrif Hönnu svaraverð og er hissa á að KSÍ hafi einfaldlega haft fyrir því að svara einni af mörgum „ritvélum réttlætisins í dag.“
Hugi telur einfaldlega að KSÍ hafi ekki átt að svara þessum pistli frá Hönnu.
„Til hvers að svara þessu? Það eru margar ritvélar réttlætisins í dag. Þú átt bara ekki að svara þessu, þú ert að hella olíu á eldinn með því að svara þessu,“ voru orð Huga.