- Auglýsing -
Tónlistarparið Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson eignuðust dreng í síðustu viku og birtu mynd af nýjasta fjölskyldumeðliminum á samfélagsmiðlum í gær.
„Þessi dásamlegi drengur kom í heiminn 19 júní með hraði. Öllum heilsast vel og við gætum ekki verið þakklátari fyrir þessa tvo demanta,“ skrifaði Jóhanna á Facebook.
Fyrir eiga þau stelpu fædda árið 2015. Systkinin má sjá á myndinni hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Jóhanna Guðrún ólétt í Hatara-búning
Mynd / Ernir Eyjólfsson