Sjúklingur á sextugsaldri lést á Landspítala í gær vegna COVID-19. Aðstandendum er vottuð samúð á vef Landspítalans þar sem greint var frá andlátinu.
Þetta er annað andlátið á skömmum tíma vegna Covid-19. Maður á sjötugsaldri lést í fyrradag af völdum veirunnar á gjörgæsludeild Landsspítalans.
Andlátin á Íslandi í fjórðu bylgju faraldursins eru nú orðin tvö talsins. Alls hafa þá 32 einstaklingar látist af völdum veirunnar frá upphafi hennar.
Fjórir liggja nú á gjörgæsla með Kórónuveiruna en 16 aðrir liggja á sjúkrahúsi af sömu ástæðu.