Sólveig Eiríksdóttir gekk nýlega í gegnum skilnað og segir að hún og fyrrum maður hennar, Elías Guðmundsson, hafi þroskast í sundur.
Sólveig, eða Solla Eiríks, eins og hún er jafnan kölluð, segir að skilnaðurinn hafi verið sameiginleg ákvörðun:
„Ég get bara talað fyrir mig, en við áttuðum okkur bæði á því að við höfðum þroskast í sundur eftir sérlega viðburðaríkan og skemmtilegan tíma saman og tókum sameiginlega ákvörðun um að halda hvort í sína áttina,“ segir Solla og bætir við:
„Það er ekkert skemmtilegt að skilja, og því ferðalagi fylgir alls konar tilfinningakokteill. Við erum bæði mjög sátt við þessa ákvörðun okkar og ákváðum að varðveita góðar minningar og gera þetta eins fallega og hægt væri.“
Heimild: Smartland