Yfirþjálfari yngri flokka hjá Þrótti Reykjavík, Þórður Einarsson, segir á samfélagsmiðli hvorki Guðna Bergssyni né allri stjórn KSÍ sé áfram stætt í starfi vegna þess hvernig sambandið hefur tekið á ofbeldismálum tengdum landsliðsmönnum karlalandsliðsins og kallar skýrt eftir uppsögn Guðna stjórnarinnar:
„Ef Guðna og núverandi stjórn KSÍ er annt um íslenska knattspyrnu segir stjórnin af sér strax. Hreyfingin er brunarúst og orðspor þeirra sem spila og starfa í kringum sportið og hafa engan áhuga á þessum vinnubrögðum er löngu farið að líða fyrir.“