Fjögur börn eru smituð af Covid í 1. bekk í Grunnskólanum á Ísafirði. þetta kemur fram í tölvupósti frá skólastjóranum sem skorar á fólk að fara varlega. Delta-afbrigði Covid herjar nú á Ísfirðinga sem aldrei fyrr og er fjöldi manns í sóttkví.
„Við vorum að fá upplýsingar um það frá heilbrigðisstofnuninni að smitin eru nú orðin fjögur í 1. bekk. Enn er beðið eftir niðurstöðum úr fjölmörgum prófum og fáum við þær á morgun,“ sagði í tölvupósti Sveinfríðar Olgu Veturliðadóttur, skólastjóra í gær.
„Það er ljóst að þetta afbrigði sem hér er á ferðinni er bráðsmitandi og ítrekum við að aldrei er nógu varlega farið. Ef börnin eða aðrir í fjölskyldunni sýna minnstu einkenni verðið þið að panta sýnatöku strax,“ segir skólastjórinn.
Áður hefur komið upp bylgj avegna Covid en þá lagðist veiran á eldra fólk en ekki börn.