- Auglýsing -
Nýkrýndi Kokkur ársins, Sigurjón Bragi Geirsson, matreiðslumeistari hjá Garra heildverslun og þjálfari kokkalandliðsins, verður gestakokkur á Mathúsi Garðabæjar á laugardaginn.
Hann mun galdra fram dýrindis fjögurra rétta matseðil ásamt matreiðsluteymi Mathúss Garðabæjar. Matseðilinn má sjá hér fyrir neðan.
Bleikja
Léttelduð bleikja, íslenskt wasabi, þari, hrogn, fennel
Rauðspretta
Pönnusteikt rauðspretta, blómkál, léttsýrð epli, eggjafroða
Lamb
Lambafille og brasseruð öxl, kartöflumús, shiitake sveppir, sultaður laukur,rósmaríngljái
Súkkulaði og blóðappelsínur
Yuzu-hvítsúkkulaðimús og brownie, heit karamella, blóðappelsínusorbet
Verð er 7.990 krónur.
- Auglýsing -
Sjá einnig: Mikil stemmning á Kokki ársins 2019
Mynd / Sigurjón Ragnar