Maður nokkur ógnaði fólki í nótt og vann skemmdarverk á bílum.
Hann var var í annarlegu ástandi og hótaði lögreglumönnum sem komu á vettvang. Maðurinn var umsvifalaust handtekinn og læstur inni í fangaklefa.
Tveir ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna voru handteknir. Annar þeirra reyndist vera án ökuréttinda. Báðum var sleppt úr haldi eftir sýnatöku.
Þá hafði lögreglan í Hafnarfirði afskipti af konu sem grunuð var um þjófnað í verslun. Fíkniefni fundust á konunni. Henni sleppt úr haldi að skýrslutöku lokinni.
Lögreglan var með klippurnar á lofti. Skráningarmerki voru þá tekin af 12 ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu. Ástæða var vanræksla á tryggingum eða bifreiðaskoðum.