Kolbrún Bergþórsdóttir, stjörnublaðamaður Fréttablaðsins, á varla til orð yfir Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, sem baðst afsökunar á því að hafa notað orðið fáviti yfir þá sem beita kynferðisofbeldi. Kolbrún skrifar leiðarastúf um þetta efni þar sem hún segir forsetann vera of gefinn fyrir að stökkva á vagn rétttrúnaðar: „Dæmi um það er þegar hann baðst afsökunar á því að hafa notað orðið fáviti. Hann notaði orðið í merkingunni bjáni. Ekkert er að því. Enda botna fjölmargir alls ekkert í þessari afsökunarbeiðni hans,“ skrifar Kolla.
Fleira dynur á forsetanum sem þarf þessa dagana að svara fyrir kynferðisáreitni, einelti og spillingu á meðal starfsmanna sinna. Þá er rætt um vínþjófnað á Bessastöðum. Talsvert virðist hafa verið um fávita á Bessastöðum …