- Auglýsing -
Skóval Justins Bieber um helgina vakti mikla athygli hjá tískuunnendum.
Tónlistarmaðurinn Justin Bieber er óhræddur við að taka áhættu þegar kemur að klæðaburði og tísku. Það sýndi hann og sannaði um helgina þegar hann klæddist Crocs skóm.
Crocs skórnir eru afar umdeildir. Ákveðinn hópur heldur því fram að þetta séu þægilegustu skór sem fyrirfinnast á meðan aðrir segja skóna vera risavaxið hönnunarslys.
En Bieber er ekki sá einni sem hefur reynt að koma Crocs skónum í tísku. Söngkonan Ariana Grande klæddist til að mynda Crocs skóm á dögunum. Rihanna hefur einnig klæðst Crocs skóm á almannafæri og sömuleiðis rapparinn Post Malone.