Dagbjört Lára Sverrisdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þann 21. september 2021. Í dag birtist minningagrein um Dagbjörtu í Morgunblaðinu.
Dagbjört Lára Sverrisdóttir fæddist 2. desember 1974 í Reykjavík. Hún lést 28. desember 2019 í San Diego í Kaliforníu, þar sem hún bjó. Hún var því einungis 45 ára þegar hún kvaddi þessa jarðvist, eftir erfið veikindi.
Dagbjört nam lífeindafræði við Tækniskólann og starfaði ávallt á því sviði. Hún leitaðist við að auka þekkingu sína og nam allt sem þurfti svo hún gæti unnið við sitt fag í Bandaríkjunum. Þegar hún lést hafði hún lokið MBA námi þar ytra, meðfram störfum sínum á sjúkrastofnunum.
Falleg mynd er dregin upp af Dagbjörtu í minningagrein sem Logi Hjartarson skrifar:
„Dabba er ein af hetjunum mínum og í minningunni sé ég hana fyrir mér með sitt fallega rauða hár. Og hvernig er hún búin? Jú, í fallegum kjól með gullband um sig miðja, þar rauður loginn brann.“
Kristrún Þórdís Stardal segir meðal annars um vinkonu sína:
„Hún naut lífsins eftir bestu getu, neitaði að vera „krabbameinssjúklingur“, hún var hún sjálf og ákveðin í að vinna baráttuna. En lét líka draumana rætast; keypti sér rauðan blæjubíl, ferðaðist m.a. til Mið-Austurlanda og síðast til Kína aðeins tveimur mánuðum áður en hún kvaddi þessa jarðvist.“
Útför Dagbjartar Láru Sverrisdóttur fer fram í dag, 21. september klukkan 13 frá Fossvogskirkju.
Blessuð sé minning Dagbjartar Láru.