Tveir aðilar sem sóttu kosningavöku Pírata á Brugghúsinu Ægisgarði síðastliðið laugardagskvöld hafa greinst með Covid-19.
Smitrakningarteymið hefur haft samband við þá gesti sem þurfa að fara í sóttkví vegna smitanna.
Þetta kemur fram í tölvupósti Pírata til þeirra sem sóttu kosningavökuna á kjördag.
Gestir kosningavökunnar eru hvattir til að vera vakandi fyrir einkennum Covid-19 næstu daga og fara í sýnatöku ef þurfa þykir, en allir gestir kosningavökunnar þurftu að skrá sig við komuna á Brugghúsið.
Tölvupósturinn í heild:
Í gærkvöldi greindust Covid-smit hjá tveimur aðilum sem sóttu kosningavöku Pírata á Brugghúsinu Ægisgarði laugardagskvöldið 25. september. Smitrakningarteymi hefur nú þegar haft samband við öll sem þurfa að fara í sóttkví vegna þessara smita, en gestir Pírata síðasta laugardag eru hvattir til að vera vakandi fyrir einkennum Covid-19 næstu daga og fara tafarlaust í sýnatöku finni þeir fyrir einkennum. Frekari upplýsingar um einkenni Covid-19, smitgát og sýnatökur má finna á covid.is . Öllum gestum var gert að skrá sig við komu á kosninguvöku Pírata og hafa öll fengið skilaboð um að gæta varúðar næstu daga.
Þetta eru ekki fyrstu smitin sem greinast eftir kosningavökur liðinnar helgar. Í fréttum í gær kom fram að tveir hefðu greinst smitaðir af Covid-19 eftir kosningavöku Framsóknarflokksins.