Davíð Oddsson, aðalritstjóri Morgunblaðsins, fer mikinn í leiðara þar sem hann gerir sem minnst úr kosningahneykslinu í Norðvesturkjördæmi og telur af og frá að ógilda þurfi kosninguna þrátt fyrir gróf lögbrot við meðferð kjörgagna. Afstaða Davíðs nú er einkennileg í ljósi þess að þegar kosið var til stjórnlagaþings komu í ljós ágallar varðandi kjörklefa sem þó höfðu engin áhrif á niðurstöður kosningar. Davíð og Sjálfstæðisflokkurinn linntu ekki látum fyrr en kosningin hafði verið ógilt og eyðilagt fyrir þeim sem vildu lagfæra stjórnarskránna. Nú er allt annað uppi á teningnum eins og segir í niðurlagi leiðarans. „Það er alvarlegt mál að grafa undan trausti almennings á alþingiskosningum. Það sem fram er komið í þessu máli gefur ekkert tilefni til að það sé gert“. Tvöfeldni eða hræsni kynni einhver að segja …