Það er ekkert sjálfgefið í því að núverandi ríkisstjórnarflokkar nái saman. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, er með sjálfstraustið í botni eftir kosningasigurinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er með næstlélegustu útkomu síns flokks á síðari tímum en telur sig hafa sigrað hrakaspárnar, hið minnsta. Þá er Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, augljóslega með sinn flokk í sárum eftir tapið. Báðir vilja að hún gefi eftir í völdum og áhrifum. Hægagangur í viðræðum bendir til þess að spor Katrínar inn í endurnýjað stjórnarsamstarf séu þung og henni muni reynast erfitt að sannfæra sitt fólk um þá afslætti sem krafist er að hún gefi …