Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson tilkynnti að hann yrði ekki með í komandi verkefnum landsliðsins á næstunni.
Jóhann Berg er meiddur, en talið var tæpt að hann myndi ná að jafna sig fyrir komandi leiki. Hann er því tæpur og vildi ekki taka áhættuna á að meiðast enn verr.
Þá spilaði það inn í ákvörðunina að Jóhann Berg er ekki sáttur hvernig KSÍ hefur brugðist við vegna ofbeldismála einstakra landsliðsmanna – en bæði Kolbeinn Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson fá ekki að vera með landsliðinu, allavega tímabundið á meðan mál þeirra eru enn óleyst.
Tanja Ísfjörð hefur ekki mikla samúð með Jóhanni Berg og telur að landsliðsmaðurinn sé ósáttur við meðferðina á áðurnefndum leikmönnum og það sé fyrst og síðast ástæðan fyrir því að hann gefur ekki lengur kost á sér:
„Segðu mér að þér sé DRULL um þolendur án þess að segja mér það. Án djóks?“ skrifar Tanja og bætir við:
„Hlífðu þér vegna meiðsla, flott! En að segja sig úr hóp korter í leik af því að meintir ofbeldisvinir þínir mega ekki vera með? Oj, þú setur líka auka álag á þá sem eru að fara að keppa? Drull um það?“