- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú ökumanns fólksbifreiðar sem ók á unga stúlku á rafmagnshlaupahjóli við Grandatorg í Reykjavík um klukkan 16:43 í gær, mánudaginn 4. október.
Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að stúlkan hafi slasast og að ökumaðurinn hafi ekið af vettvangi. Slysið varð þegar stúlkan var á leið yfir Ánanaust til suðurs, en slysstaðurinn var hringtorgið á mótum Ánanaust, Hringbrautar og Eiðsgranda.
„Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.
Lögreglan biður ökumann fólksbifreiðarinnar um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000.
Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið [email protected],“ segir í tilkynningu lögreglu.