Búið er að stofna styrktarreikning fyrir dætur Guðna Más Henningssonar heitins, vegna skyndilegs fráfalls hans.
Eldri dóttir Guðna er nú stödd á Tenerife, þar sem faðir hennar bjó og undi sér vel síðustu árin í lífi sínu.
Kostnaður getur verið umtalsverður þegar andlát Íslendinga ber að utan landssteinana og margt sem huga þarf að, meðal annars flutningur hins látna til Íslands.
Í tilkynningu Þórdísar Karenar Þórðardóttur segir:
„Fráfall Guðna Más Henningssonar skilur eftir sig stórt skarð í hjörtum margra, enda var hann með eindæmum góður maður og vinamargur. Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir dætur hans og afastrákinn sem voru ljósið í lífi hans. Ljóst er að erfiðir tímar eru framundan og það er sárt að vita til þess að þau þurfi að hafa áhyggjur af fjárhag á tímum sem þessum. Eldri dóttir Guðna er nú stödd úti á Tenerife að undirbúa flutning hans hingað heim.
Þeir sem sjá sig færa um að leggja dætrum hans og afastrák lið geta lagt inn á eftirfarandi reikning:
Rkn: 0370-26-028576
Kt: 030594-2589
Margt smátt gerir eitt stórt.“