- Auglýsing -
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsstjarna á RÚV er með bein í nefinu og alveg óhræddur við að tjá skoðanir sínar svona hér um bil hvar og hvenær sem er.
Gísli Marteinn hefur lengi talað gegn nagladekkjum og hefur í gegnum tíðina fundið þeim allt til foráttu.
Og það hefur ekkert breyst. Hann tjáir sig á Twitter um dekkin umdeildu, og það af nokkurri hörku:
Nagladekk eru algjör óþarfi í Reykjavík og þau drepa fólk! segir Gísli Marteinn og bætir eiginlega um betur:
Og auk þess að drepa þá skaða þau fóstur, þau stuðla að alzheimer, þau auka hávaðamengun og svo framvegis!
Skilaboð Gísla Marteins varðandi nagladekkin eru kýrskýr:
Burt með þau.