Miðvikudagur 5. febrúar, 2025
2.8 C
Reykjavik

Kona misnotaði son sambýlismanns síns – Landsréttur staðfestir dóminn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„X var sak­felld fyr­ir brot gegn 1. mgr. 201. gr. al­mennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/​1940 með því að hafa átt í kyn­ferðis­sam­bandi við sam­búðarbarn sitt, A, á tæp­lega tveggja ára tíma­bili er hann var 16 til 17 ára,“ seg­ir í út­drætti dóms­ sem féll í Héraðsdómi Reykjaness og var staðfestur af Landsrétti í dag.

Konan, sem er á þrítugsaldri, var dæmd í tveggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn pilti á árunum 2015 til 2017, en pilturinn var 16 til 17 ára gamall yfir tímabilið sem brotin áttu sér stað. Pilturinn er sonur fyrrum sambýlismanns konunnar, en konan er sex árum eldri en pilturinn.

Konan var jafnframt dæmd fyrir rangar sakagiftir, en það var hún sem upphaflega kærði piltinn og sagði hann hafa nauðgað sér ítrekað og áreitt sig kynferðislega á þessu tveggja ára tímabili.

Fyrst um sinn tók pilturinn á sig alla sök og játaði að hafa brotið á konunni. Þegar hann fór svo til Stígamóta og var lagður inn á geðdeild komust sérfræðingar þar fljótlega að þeirri niðurstöðu að pilturinn væri ekki gerandi í málinu, heldur brotaþoli.

Geðlæknir sem annaðist piltinn trúði ekki frásögnum hans af því að hafa nauðgað konunni og að lokum viðurkenndi pilturinn að þau hefðu átt í ástarsambandi sem hún hefði átt jafn mikið frumkvæði að og hann sjálfur. Hjá Stígamótum var einnig bent á að frásögn piltsins um að hafa nauðgað konunni gæti ekki passað.

Dóm Héraðsdóms Reykjaness, sem staðfestur var í Landsrétti, má lesa hér.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -