Miðvikudagur 5. febrúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Eliza forsetafrú sakar Morgunblaðið um hrútamenningu: „Ætlar þessu aldrei að linna?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eliza Reid forsetafrú er mjög ósátt við umfjöllun Morgunblaðsins í morgun, um heimsókn Friðriks, krónprins Danmerkur, á Bessastaði í gærkvöldi.

Eliza birtir ljósmynd úr Morgunblaðinu á Facebook-síðu sinni en á myndinni má sjá hana taka í höndina á Friðriki krónprinsi þegar hann mætti í kvöldverðarboð hjá forsetahjónunum ásamt fylgdarliði. Er ljóst á færslu Elizu að hún er mjög ósátt við Morgunblaðið. Ástæðan er sú að hvergi er minnst á Elizu í fréttinni en nöfn karlanna á myndinni birt.

Eliza Reid tekur í höndina á Friðriki krónprins
Mynd: Morgunblaðið

„Í stuttu máli er myndatextinn á forsíðu blaðsins í dag svona: Einn karlmaður sem ber nafn kom í kvöldverð hjá öðrum karlmanni sem ber nafn. Með gestinum var þriðji karlmaðurinn sem heitir líka nafni [sést ekki á myndinni]. Meira var það ekki. #erukonurtil //“

Fjölmargir tjá sig undir færslu forsetafrúarinnar. Lára nokkur er ein þeirra. „Svei mér þá. Dæmigert – en ætlar þessu aldrei að linna?“ spyr Lára. Tatjana telur nauðsynlegt að finna eitthvað annað en Moggann að lesa. „Kemur ekki einu sinni fram í hvaða fötum ósýnilega konan var! Hvað eigum við konur að lesa þá?“ spyr hún.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -