Ritstjórinn knái, Kristjón Kormákur Guðjónsson, er kominn á fullt skrið með vef sinn, 24.is. Kristjón var í drottningarviðtali við DV, sinn gamla miðil. Þar lýsti hann stefnu nýja fjölmiðilsins og þeim áformum að gefa út blað á landsvísu. Hann fullyrti að fjölmiðillinn væri aðeins í eigu starfsmanna. Þá sagði hann blaðamanni DV að hann byggi yfir innherjaupplýsingum um önnur fjölmiðlafyrirtæki. Giskað er á að þar sé hann að vísa til Torgs, útgefanda DV, Hringbrautar og Fréttablaðsins. Aðaleigandi þeirra miðla er Helgi Magnússon athafnamaður. Kristjón var á sínum tíma látinn fara frá útgáfunni eftir að hafa, að sögn, unnið nokkra aðsóknarsigra…
Smelltu hér til að lesa brakandi og feskt helgarblað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan: