- Auglýsing -
Sjónvarpsstjarnan og sagnaþulurinn Elín Hirst er komin undir fullum seglum inn á ritstjórn Fréttablaðsins eftir að hafa farið í pólitík og á þing og hrakist aftur út undan ráðandi öflum í Sjálfstæðisflokknum. Nú skrifar hún eðalfréttir í Fréttablaðið undir ritstjórn síns gamla undirmanns, Sigmundar Ernis Rúnarssonar, og leiðbeinir jafnframt þeim sem minna mega sín. Flestir eru á því að mentorinn sé mikill liðsauki fyrir ritstjórnina sem nú situr við fótskör hennar og lærir. Ekki er ljóst hvaða stöðu hún gegnir en talið er að vegur hennar inan Fréttablaðins eigi eftir að vaxa á næstunni …