Svala Björgvins lifir lífi sínu í kærleikanum og nú hefur hún gefið út lag ásamt myndbandi, sem heitir Birtunnar Brú og fjallar lagið um að elska alla þá sem að þú elskar skilyrðislaust og taka þeim eins og þau eru, og öllu sem þeim fylgir.
Svala nefnir að lagið sé „eftir Þóri Úlfarsson og textann samdi Kristján Hreinsson, en textinn kallaði til mín þar sem ég tengir textann við kærleikann sem að ég veiti sjálfri mér og öllum í mínu lífi.“
Svala segir að mikilvægt sé að dæma ekki aðra í kringum sig heldur sýna öllum skilning, ást og umhyggju skilyrðislaust, því við erum öll mannleg og það sem að allir vilja er kærleikann frá náunganum; að vera séð eða séður og elskaður fyrir allt sem að maður er.
Svala segir að hún sé „ekki hrifinn af því að tala aðra niður eða hlusta á aðra dæma fólkið í kringum sig og finnst mér ekkert meira heillandi en að umkringja mig sterkum konum sem að styðja hverja aðra; byggja hverja aðra upp og lifa í kærleikanum.“
Myndbandið, sem er framleitt af Álfrúnu Kolbrúnardóttir, er táknrænt fyrir Svölu, þar sem hún býr í birtunnar brú, og í þessu glæsilega myndbandi sýnir Svala á sér margar mismunandi hliðar með allskonar ævintýralegum búningum. En sjón og heyrn er sögu ríkari – njótið!