- Auglýsing -
Nú er byrjað að bólusetja gegn inflúensu víða á landinu í dag.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fengust þær upplýsingar að að fólk í forgangshópum geti komið á heilsugæslustöðvar milli klukkan hálf níu og hálf fjögur alla virka daga til að fá sprautu.
Í forgangshópum eru það 60 ára og eldri, sem og fólk með undirliggjandi sjúkdóma, barnshafandi konur, og heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í áhættuhópum.
Sóttvarnarlæknir, Þórólfur Guðnason, hefur látið eftir sér hafa að hann óttist að inflúensan nú verði skæðari en síðustu ár, vegna þess að hún kom ekki til landsins í fyrra.