Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH í knattspyrnu, sendi frá sér rétt í þessu fréttatilkynningu þar sem hann svarar ásökunum á hendum honum um alvarlegt kynferðisofbeldi. Það ofbeldi á að hafa átt sér stað fyrir 10 árum eftir landsliðsleik Íslands gegn Danmörku í Kaupmannahöfn, en þar á hann, í félagi við Aron Einar Gunnarsson, að hafa nauðgað konu á hótelherbergi. Segist Eggert vera alsaklaus af ásökunum. Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu Eggerts:
„Undanfarnar vikur hafa fjölmiðlar fjallað um atvik sem á að hafa átt sér stað í Kaupmannahöfn árið 2010 þar sem tveir landsliðsmenn hafa verið bornir þungum sökum. Ég er annar umræddra landsliðsmanna.
Það er hrikalegt áfall að vera ásakaður um hræðilegt ofbeldisbrot vegna atviks sem var svo sannarlega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjölmiðlum.
Ég hef reynt að skýla mér og fjölskyldu minni fyrir kastljósi fjölmiðla þar sem ég hafði fram að birtingu fréttar Stundarinnar í dag ekki verið nafngreindur. Föstudaginn 1. október síðastliðinn hafði ég hins vegar þegar óskað eftir því að vera boðaður í skýrslutöku til að skýra frá minni hlið.
Þar sem ég hef ekki enn fengið tækifæri til að skýra mál mitt á réttum vettvangi og sökum umfjöllunar fréttamiðla í dag tel ég mig hinsvegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opinberlega yfir að ég er fullkomlega saklaus af því sem ég hef verið sakaður um.
Ég vona að málið komist í réttan farveg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásökunum.
Eggert Gunnþór Jónsson.“