Bílstjóri strætisvagns sem stöðvaði Skerjafirði var klagaður fyrir að hafa kastað af sér vatni við göngustíg. Tanja Sif Hansen, sem var á gangi með börnum sínum, sex og átta ára, gekk framhjá bílastjóranum sem þá var að létta á sér. Getnaðarlimur hans blasti við Tönju og börnum hennar sem klagaði manninn til forsvarsmanna Strætó. Málið var þó ekki eins vaxið og ætla mátti.
Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, staðfesti klögumálið í samtali við Fréttablaðið og var mikið niðri fyrir. „Ég var að heyra um þetta fyrir svona klukkustund“ segir Guðmundur Heiðar við blaðið.
Tanja Sif lýsti einnig atvikinu. „Þegar við vorum komin fyrir hornið á vagninum blasti við okkur ófögur sjón,“ segir hún og áréttar að bílstjórinn hafi ekki farið leynt með athafnir sínar og að kynfæri hans hafi verið sýnileg. Hún efast um að þau börnin þori í ein í strætisvagn eftir atvikið.
„Ég meina, maðurinn sneri í áttina að hlaupastígnum, honum var alveg sama og væntanlega að bíða eftir að vera gómaður,“ segir Tanja Sif.
Fjölmiðlafulltrúinn segir málið í rannsókn hjá fyrirtækinu og að þetta sé auðvitað ekki samkvæmt starfsreglum. Þá sé klósettaðstaða fyrir starfsmenn á þessari endastöð í Skerjafirði.
Að sögn Guðmundar sé þetta óskiljanlegt og hann hafi verið hálf orðlaus þegar hann las kvörtunina. Skömmu síðar hafði hann samband við Fréttablaðið og upplýsti að sá sem kastaði af sér vatni hafi verið farþegi en ekki bílstjóri. Þetta var því ekkifrétt dagsins.