Miðvikudagur 5. febrúar, 2025
2.8 C
Reykjavik

Aðalmeðferð í máli Gráa hersins á föstudag: „Verður fróðlegt að heyra málflutning ríkisins“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Grái herinn boðar til útifundar í tilefni af því að aðalmálflutningur þriggja félaga Gráa hersins gegn Tryggingastofnun f.h. íslenska ríkisins vegna skerðinga stofnunarinnar á ellilífeyri og heimilisuppbót á móti greiðslum frá lífeyrissjóðum fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 9.15 á morgun.

Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara: „það verður útifundur á Austurvelli á föstudaginn þegar aðalmeðferð skerðingamálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið, eða nánar tiltekið klukkan 14.“

Það getur brugðið til beggja vona með niðurstöðuna í málinu, en Helgi segist heyra í fólki sem spáir því að málið vinnist. „En það verður fróðlegt að heyra málflutning ríkisins, hvernig það ver það þessar skerðingar, af hverju eru þær, hver stendur fyrir þessu og hvaða reikningskúnstir eru þetta?“

Nánari upplýsingar um málið:

Þrír félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldra fólks um lífeyrismál, hafa höfðað mál á hendur Tryggingastofnun f.h. íslenska ríkisins vegna skerðinga stofnunarinnar á ellilífeyri og heimilisuppbót á móti greiðslum frá lífeyrissjóðum.

Málshöfðunin er reist á því sjónarmiði að með skerðingu opinberra lífeyrisgreiðslna í hlutfalli við réttindi, sem ellilífeyristakar hafa áunnið sér í lífeyrissjóðum með vinnuframlagi sínu og iðgjöldum, sé gengið gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti lífeyristaka.

- Auglýsing -

Þessar skerðingar nemi allt að 56,9% af greiðslum úr lífeyrissjóði. Þegar einnig sé tekið tillit til tekjuskatta sé því um að ræða ígildi eignaupptöku á allt að 72,9% greiðslna frá lífeyrissjóðunum. Þetta sé brot á 72. gr. stjórnarskrárinnar og 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi eignarréttarins, og ákvæðum 65. gr. stjórnarskrárinnar og 14. gr. mannréttindasáttmálans, sem leggja bann við mismunun.

Í stefnunni er það rakið að kerfi skyldulífeyrissparnaðar, sem komið var á fót með kjarasamningum á árinu 1969, hafi verið ætlað að koma til viðbótar en ekki í stað almannatrygginga. Með núverandi skerðingum sé verulegur hluti þess ávinnings sem rekja má til lífeyrissjóðakerfisins hins vegar færður frá sjóðfélögum til ríkisins. Í stað þess að sjóðfélagar fái sjálfir notið lífeyrissparnaðar síns séu réttindi þeirra í lífeyrissjóðunum notuð til að draga úr útgjöldum ríkisins til almannatrygginga.

Bent er á að gerðar séu ríkar kröfur um að inngrip í eignarréttindi uppfylli þau skilyrði um lögmæti, réttmæti og meðalhóf sem leiða af 72. gr. stjórnarskrárinnar. Íslenska ríkinu sé hinsvegar engin knýjandi nauðsyn á að skera niður útgjöld sín til lífeyris aldraðra með svo stórfelldum hætti, þar sem þau samsvari nú aðeins broti af því sem varið er til þessa málaflokks í nálægum löndum.

- Auglýsing -

Hagsmunir einstaklinganna af því að fá að njóta ávaxtanna af lífeyrissparnaði sínum séu því mun ríkari en hagsmunir ríkissjóðs af því að skerða þessi réttindi. Þá bitni skerðingarnar á fámennum hópi ellífeyristaka auk þess sem lífeyristökum sé mismunað innbyrðis með ýmsum hætti.

Að baki málshöfðuninni stendur Málsóknarsjóður Gráa hersins sem sérstaklega hefur verið komið á fót til að fjármagna málareksturinn. MAGNA lögmenn flytja mál einstaklinganna þriggja fyrir dómi.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -