- Auglýsing -
Í tilkynningu á vef Landspítala kemur fram að nú liggi 13 sjúklingar á spítalanum vegna kórónuveirunnar. Fjórir eru á gjörgæslu og einn í öndunarvél.
Meðalaldur sjúklinganna er 56 ár. Fjölgaði því sjúklingum á gjörgæslu frá því í gær og einn fór í öndunarvél.Bættust 56 fullorðnir við á göngudeild Covid-19 í gær og 21 barn.
Þá eru 873 smitaðir í einangrun og 1.696 í sóttkví.
Landspítali er á óvissustigi vegna málsins.