Ökumaður bifreiðar stöðvaði ekki þegar lögregla gaf honum merki um það, í Árbæ um tvöleytið í nótt. Upphófst þá eftirför þar sem ökumaðurinn reyndi að komast undan lögreglu á 160 kílómetra hraða.
Ökuníðingurinn ók ítrekað á móti umferð og mikil mildi að engin slys urðu á fólki.
Þegar ökumaðurinn nam loks staðar náði hann í einni svipan að yfirgefa bifreiðina og hlaupa af vettvangi.
Samkvæmt dagbókarfærslu lögreglu telur hún sig þekkja ökuníðinginn.
Töluvert var um umferðarlagabrot í nótt og þurfti lögregla að hafa afskipti af allnokkrum ökumönnum, sem ýmist keyrðu of hratt eða undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Sömuleiðis var ökumaður stöðvaður sem kom í ljós að var réttindalaus og hafði aldrei haft ökuréttindi. Viðkomandi var ekki með skilríki á sér og því þurfti að fara með hann á lögreglustöð til að staðfesta hver hann væri.