Miðvikudagur 5. febrúar, 2025
4.8 C
Reykjavik

Árni leitar að bjargvætti sínum: „Blóðið flæddi um höfuðið og ég gat ekki staðið upp“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Árni Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, skrifaði nýverið færslu á Facebook þar sem hann lýsti eftir bjargvætti sínum eftir að hann hafði dottið á höfuðið.

Árni hafði farið með konu sína í augnaðgerð og ætlað að sinna erindagjörðum á meðan konan var í aðgerð.

„Mikið langar mig að vita hvað hann heitir maðurinn, sem aðstoðaði mig skammt austan við Landspítalann í morgun, eða skammt frá þar sem sjúkrabílarnir athafna sig. Ég hafði farið með konu mína í augnaðgerð og þar sem áætlað var að ég gæti ekki sótt hana fyrr en eftir 4-5 klukkustundir ákvað ég að fara og sinna nokkrum erindum. Á leiðinni út á bílastæði hefur hálkublettur orðið á leið minni og ég fór lóðbeint á hausinn.“

Telur Árni að hann hefði misst meðvitund um stund.  „Blóðið flæddi um höfuðið og ég gat ekki staðið upp; líklega misst meðvitund skamma stund. Þá kom hjálpsamur og vænn maður, hjálpaði mér á fætur og vildi allt fyrir mig gera.“

Segist Árni ekki hafa viljað fara á Landspítalann til að láta gera að sárum sínum, heldur frekar á Heilsugæsluna í Hamraborg í Kópavogi.

„Kannski undarleg ákvörðun, sem ugglaust var tekin vegna allrar umræðunnar um mikið álag á starfsrólki spítalans. Veit þó að ég hefði fengið góða þjónustu. – En yndislega starfsfólkið í Heilsugæslunni tók mér vel, saumaði nokkur spor í ennið og sendi mig svo í myndatöku. – Mér er sama hvað hver segir um heilbrigðiskerfið okkar. Í langflestum tilvikum er það gott og jafnvel frábært.“

- Auglýsing -

Að lokum segir Árni að augnaðgerð konu sinnar hafi gengið mjög vel.

„En nú langar mig að vita hver hann er miskunnsami Samverjinn, svo ég megi þakka honum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -