- Auglýsing -
Hús teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt til sölu á 185 milljónir í smáíbúðarhverfinu. Hér er um að ræða einstaka 6 herbergja eign mikið endurnýjað og vel hannað 231,8 fm einbýli með skjólgóðum garði til suðurs.
Húsið skiptist í anddyri, snyrtingu, hol, eldhús, stofu/borðstofu, þvottahús, geymslu, baðherbergi, fjögur herbergi og í kjallara er lítið herbergi og geymsla. Bílskúr var teiknaður og samþykktur á sínum tíma en var aldrei byggður. Stutt er í skóla, verslanir og aðra þjónustu.
Um er að ræða góða staðsetningu í rólegri og fallegri botnlangagötu.
Af fasteignavef MBL. Brekkugerði 4