- Auglýsing -
Þessi morgunverður er algjör orkubomba sem sniðugt er að útbúa kvöldinu áður. Fljótlegt, hollt og bragðgott
1/2 meðalstór banani, stappaður
2 matskeiðar hnetusmjör
1/4 bolli fitulaus grísk jógúrt
3/4 bolli möndlumjólk
1 matskeið hunang
1 tsk vanilludropar (má nota stevíu)
1 bolli trölla hafrar
1 matskeið chia fræ
1 tsk kanill
Aðferð
Stappaðu fyrst 1/2 banana og settu í skál.
Bættu við restinni af blautu hráefnunum og blandið vel.
Hrærið saman við þurrefnin og setjið í nestisbox eða krukku.
Skellið í kæli yfir nóttina og grípið með ykkur í vinnu eða skóla næsta morgun!