- Auglýsing -
Alls liggja 16 manns inni á Landspítala í dag vegna COVID-19. Þar af er eitt ungabarn. Þá eru 4 á gjörgæslu og eru 3 þeirra í öndunarvél.
Um það bil helmingur þeirra sem liggja inni á eru óbólusettir og meðalaldur þeirra sem liggja inni fer lækkandi; er nú 50 ár.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítalans.
Sem og þetta:
Í gær voru 72 fullorðnir og 21 barn nýskráð á göngudeild COVID-19 á Landspítala. Þetta gera því samtals 937 sjúklingar, þar af eru 244 börn í eftirliti.
Fyrir þá sem vilja fylgjast enn betur með hvernig ástandið er að þróast þá eru tölur og upplýsingar um Covid 19 uppfærðar fyrir klukkan 13 á degi hverjum.