„Krónan á útopnu með verðlagningu sem meikar ekkert sens. Sama kakan. Ein með möndlubragði en hin appelsínu,“ segir Arnar nokkur í Facebook-hópnum „Vertu á verði – eftirlit með verðlagi“.
Meðfylgjandi eru tvær myndir sem sýna kökur frá sama framleiðanda, eins að öllu leyti fyrir utan bragðtegundina; önnur með möndlu- og hin appelsínubragði.
Verðmunurinn er vissulega sláandi. Möndlukakan kostar 699 krónur, á meðal appelsínukakan kostar 1.359 krónur.
Appelsínukakan er semsagt rétt tæplega tvisvar sinnum dýrari en möndlukakan.
Báðar kökurnar eru frá Kristjáns-bakaríi og ekki er að sjá að þarna sé nokkur annar munur en bragðtegundirnar.
„Kílóverðið á appelsínum hljóta að kosta svona mikið meira en gervi möndlubragðið á hinni kökunni,“ veltir Jóhann fyrir sér í athugasemd við færsluna. „Eða að möndlukakan hafi verið bökuð fyrir mánaðarmót á meðan appelsínukakan hafi verið bökuð eftir mánaðarmót þegar allt hækkaði út af dáldlu.“
„Gæðabakstur – Ömmubakstur á eða rekur Kristjáns bakarí. Spurning hvort þeir geti svarað til um þennan verðmun,“ segir Hrefna og merkir Gæðabakstur í athugasemd sinni.
Enn hefur ekkert svar borist frá framleiðanda eða versluninni, en Kristjánsbakarí og Krónan hafa sömuleiðis verið merkt í færsluna.