Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnari Svani Steindórssyni, 43 ára. Hann hefur verið búsettur í Búdapest í Ungverjalandi undanfarin ár og var síðast í sambandi við ættingja sína hérlendis í byrjun síðasta mánaðar. Þau sem geta veitt upplýsingar um ferðir Gunnars Svans, eða hafa verið í samskiptum við hann, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið [email protected]
Óskað hefur verið eftir aðstoðar ungverskra yfirvalda við leitina að Gunnari Svani.