Alls sóttu tíu manns um tvö embætti héraðsdómara; annars vegar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, og hins vegar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Suðurlands, sem skipað verður í frá 28. febrúar 2022.
Umsóknarfrestur rann út þann 1. nóvember síðastliðinn.
Hér að neðan má sjá hverjir umsækjendur um embættin eru:
• Einar Karl Hallvarðsson, ríkislögmaður
• Karl Gauti Hjaltason, lögfræðingur
• Maren Albertsdóttir, skrifstofustjóri
• Margrét Gunnlaugsdóttir, lögmaður
• Nanna Magnadóttir, formaður og forstöðumaður
• Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
• Sigurður Jónsson, lögmaður
• Unnsteinn Örn Elvarsson, lögmaður
• Valborg Steingrímsdóttir, sviðsstjóri
• Þorsteinn Magnússon, framkvæmdastjóri
Þess má geta að allir umsækjendur sækjast eftir báðum embættunum að frátöldum Einari Karli Hallvarðssyni og Karli Gauta Hjaltasyni,; þeir sækja einungis um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Suðurlands.