Emil Pálsson, leikmaður Sogndal, sem fór í hjartastopp í upphafi vikunnar í leik með Sogndal, hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti á samfélagsmiðlum. Emil hneig niður á knattspyrnuvellinum.Hér eru íslenskar gæsalappir
Emil er nú í stöðugu ástandi á sjúkrahúsi í Noregi þar sem að hann undirgengst frekari rannsóknir.
,,Ég er djúpt snortinn yfir öllum skilaboðunum sem ég hef fengið hvaðanæva að úr heiminum síðastliðna daga. Þau gefa mér og fjölskyldu minni styrk í framhaldinu.“
,,Ég vil nýta tækifærið og þakka mörgum í dag. Í fyrsta lagi vil ég þakka þjálfarateymi og heilbrigðisstarfsfólki í Sogndal IL. Án þeirra væri ég ekki á lífi í dag. Þakkir til allra leikmanna og stuðningsmanna sem voru á vellinum daginn örlagaríka sem sýndu samvinnu án þess að hika.“
Þá þakkar Emil einnig fjölskyldu sinni.
,,Það að eiga fjölskyldu sem flaug til mín frá Íslandi til þess að vera mér við hlið er ég vaknaði á sjúkrahúsinu er ómetanlegt,“ skrifaði Emil Pálsson, leikmaður Sogndal í Noregi.“