Tónlistarkonan frábæra, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, segir síðustu 3 ár hafa einkennst af kvíða á meðan hún beið eftir niðurstöðum í máli gegn nuddaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni. Þórunn Antonía er ein fjögurra kvenna sem Jóhannes var sakfelldur fyrir að brjóta gegn.
Eins og kom fram í Mannlífi þá var dómur yfir Jóhannesi var þyngdur í Landsrétti í gær; hann dæmdur í sex ára fangelsi. Þórunn Antonía opnaði sig um málið í færslu á Facebook. Hún segir þar að 35 konur hafi kært Jóhannes og hún viti til þess að hann hafi brotið á margfalt fleirum sem ekki enn hafi þorað að kæra.
„Ég ætlaði ekki að kæra hann, á þessum tíma var svo margt erfitt í gangi í mínu lífi að ég treysti mér ekki í það enda eitt það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum að kæra mann fyrir nauðgun, viðmótið á lögreglustöðinni. Niðrandi athugasemdir i dómsal. Kvíðin að gerandi hefni sín og svo framvegis. Að ég verði drusluskömmuð fyrir alþjóð. Enn ein athyglissjúka gellan sem var svo heimsk að koma sér í þessar aðstæður alveg sjálf. Aldrei í ferlinu spurði ég hvað ég fengi í bætur, því ég kæri ekki kynferðisbrot fyrir peninga. En gott að vita að það kostar einungis 1 milljón að nauðga mér.“
Það er ekki nóg með að Þórunn Antonía hafi verið að berjast vegna máls Jóhannesar, því Þórunn Antonía er einnig að glíma við afleiðingar heimilisofbeldis.
Hún segir brotið ekki bara hafa áhrif á hana heldur börnin hennar tvö, Freyju Sól og Arnald Þór.
Ofbeldið sem Þórunn Antonía hefur orðið fyrir hefur eðlilega haft mikil áhrif á hana, sérstaklega þegar hún gekk með börn sín.
„Kynferðisofbeldi olli því að meðgangan og fæðingin gekk hræðilega. Ég fékk ofsakvíða og fæðingarþunglyndi. Ég var hrædd við karlkynslækna. Ég festist reglulega í bakinu, mjóbaki og ég náði ekki útvíkkun í báðum fæðingum, sem rekja má beint til áhrifa kynferðisofbeldis,“ segir hún og bætir við:
„Marblettur sem dofnar eða bein sem vex saman aftur. Jóhannes brást trausti mínu á mínum veikasta tíma. Fyrrverandi kærastinn minn hafði gengið það illa í skrokk á mér að ég var með mjög alvarleg líkamleg og andleg einkenni sem ég fól Jóhannesi fullt traust í að vinna með. Meiðslin lágu yfir mjaðmagrind, mjóbak og stoðkerfi. Jóhannes nauðgaði mér. Hann setti hendur sínar óvelkomnar inn í leggöngin mín. Inn í endaþarm. Hann hræddi úr mér líftóruna. Ég lá frosin á bekk í Bolholti 4 að vetri til með mann að nauðga mér eftir verstu lífsreynslu mína. „Ég er ekki reið, ég er ekki brotin, ég er ekki full af heift. Ég lít ekki á þetta sem sigur sem ég skála yfir. Þetta er harmleikur sem ótal konur og fjölskyldur þeirra eru þolendur í. Ég óska þess að þessi maður fái viðeigandi hjálp og að við sem samfélag trúum brotaþolum og berum virðingu fyrir þessu ferli og sýnum samkennd i garð þeirra hugrökku kvenna sem þora að stíga fram.“