Forsvarsmenn flugfélagsins Play segja að fyrirtækið muni skili hagnaði einhvern tímann á næsta ári. Á þriðja ársfjórðungi þessa árs var afkoma félagsins neikvæð um 1,4 milljarða króna.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, fullyrðir að þótt lausafjárstaða fyrirtækisins sé góð og hægt væri að reka það með tapi í örfá ár sé auðvitað markmiðið að skila hagnaði sem fyrst. Þetta segir hann í samstali við Morgunblaðið.
Þá segir Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður í Play, að það væru mikil vonbrigði ef ekki næðist að skila hagnaði á að minnsta kosti einum ársfjórðungi næsta árs. Þeir segja báðir að væntanlega verði félagið rekið með hagnaði næsta sumar, þar sem sætanýting þess er á uppleið og þar sem kostnaður er lægri en gert var ráð fyrir.
Flugfélagið reynir að lækka starfsmannakostnað og lítur til Esytrasaltsins í þeim efnum. Birgir og Einar Örn segja að nýkynntar fyrirætlanir um að opna starfsstöðvar í Litháen hafi verið gerðar með það fyrir augum að lækka launakostnað.