Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður sagði á ráðstefnu í síðasta mánuði að það væri hennar upplifun að hvítur karlmaður í góðum jakkafötum fengi betri framgang en aðrir hjá lögreglu og dómstólum í nauðgunarmálum. Þorbjörg hefur sinnt réttargæslu fyrir þolendur kynferðisofbeldis og á einnig sæti í eftirlitsnefnd um störf lögreglu.
Landssamband lögreglumanna hefur gagnrýnt þessi ummæli harðlega og sent dómsmálaráðherra bréf, þar sem farið er fram á að ríkissaksóknari rannsaki sannleiksgildi þessarar fullyrðingar.
Áslaug Arna segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu RÚV að þetta séu alvarlegar ásakanir og að hún hafi óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að þessi gagnrýni verði tekin til umfjöllunar innan lögreglunnar. Að öðru leyti vill ráðherra ekki tjá sig um málið að svo stöddu.