- Auglýsing -
Í færslu frá lögreglunni á suðurlandi segir að „Klukkan 14:50 barst neyðarlínu tilkynning um að erlendur ferðamaður hefði farið út með öldu í Reynisfjöru.
Voru björgunaraðilar þegar sendir á vettvang. Björgunarsveitir í Rangárvallar- og Skaftafellssýslu hófu þegar leit að ferðamanninum, sem var ung kínversk kona.
Einnig komu að leitinni bátasveitir frá Árnessýslu ásamt bát frá Vestmanneyjum og þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Nú fyrir stundu fann þyrla Landhelgisgæslunnar konuna látna í sjónum við Reynisfjöru.
Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi rannsakar nú tildrög slyssins.“
Konan sem lést var kínversk. Blessuð sé minning hennar.