Umræða um arkitektúr og borgarskipulag hefur töluvert verið í umræðunni síðustu misseri og hefur hópur komið sér saman sem kallar sig Arkitektúruppreisnin. Hreyfingin og stefnur hennar er hægt að finna á öllum Norðurlöndum, en hún á uppruna sinn í Svíþjóð.
Þau sem standa að þessari „uppreisn“ leitast við að endurvekja hefðbundinn arkitektúr og afneita þeirri hugmynd að hefðbundinn arkitektúr sé eitthvað sem tilheyri bara fortíðinni og megi ekki byggja lengur.
Hópurinn telur að meirihluti fólks þyki hefðbundinn arkitektúr fallegri og meira aðlaðandi en nútímaarkitektúr og segja að rannsóknir sem gerðar hafa verið á Norðurlöndum bendi á það.
Á morgun mánudag verður haldið til nýbyggingakosninga Arkitektúruppreisnarinnar 2021, en þar getur hver sem er kosið um byggingu sem viðkomandi þykir falleg eða ljót.
Hægt er að senda inn tilnefningar fram á 14. nóvember og á morgun verða kosningar.
Hér er hægt að finna facebook síðu Arkitektúruppreisnarinnar.